Fiskitaco með mangósalsa

Fiskitaco er eitthvað sem allir ættu að prófa. Afar hollt og gott og góð tilbreyting frá þessu hefðbundna. Fiskistangirnar hans Gríms eru tilvaldar í þann rétt. Forsteiktar fiskistangir er vara sem slegið hefur í gegn hjá bæði fullorðnum og börnum. Þetta er nýr þorskur hjúpaður með raspi. Stangirnar eru sérlega ljúffengar þegar raspurinn er orðinn stökkur eftir eldun.

Upphitunaraðferð: Hitið ofninn í 185°C. Setjið stangirnar frosnar inn og hitið í 12-15 mínútur. (Ath! Ofnar eru mismunandi að gerð og gæðum, og er upphitunartíminn aðeins til viðmiðunar.)

Mangósalsa

  • 1 ferskt mangó í teningum
  • 1 rauðlaukur, meðalstór fínsaxaður
  • ½ agúrka, smátt skorin
  • ½ rauð paprika
  • 1 stór tómatur, fínt skorinn
  • 1 msk fínsaxaður kóríander
  • safi og rifinn börkur af ½ límónu
  • 1 tsk gróft salt
  • Ferskmalaður svartur pipar, magn eftir smekk

Þessa salsa uppskrift fengu við í láni frá Evu Laufey Kjaran og mælum við mikið með henni.

Aðferð: Skerið hráefnin afar smátt niður og blandið saman í skál, kryddið til með salti og pipar og kreistið safann úr límónunni yfir. Geymið salsa í kæli áður en þið berið það fram.

Þegar stangirnar og salasað er tilbúið. Takið þið taco pönnuköku, setjið salsa fyrst, því næst skerið þið fiskistöng í litla bita og raðið á. Gott er að hafa hvítlauksdressingu til að toppa.

Verði ykkur að góðu.

Tags: No tags

Comments are closed.