Vefsíðan okkar: http://grimurkokkur.is

1. Persónuverndaryfirlýsing Grímur kokkur

Grími kokki ehf., kt. 531205-1460, Hlíðarvegi 5, 900 Vestmannaeyjar, (hér eftir „Grímur kokkur“, „fyrirtækið“, „við“), er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða persónuupplýsingum fyrirtækið safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað við geymum þær lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli Grímur kokkur safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018

2. Hvað eru persónuupplýsingar og vinnsla persónuupplýsinga?

Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings, svo sem upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP tölu og fleira.

Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga svo sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu.

3. Hvernig vinnur fyrirtækið persónuupplýsingar?

Hjá Grími kokki fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Fyrirtækið gætir jafnframt að því að persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg upprunalegum tilgangi vinnslunnar.

Fyrirtækið gætir að því að farið sé að eftirfarandi meginreglum:

  1. Að persónuupplýsingar séu unnar með sanngjörnum hætti.
  2. Að persónuupplýsingum sé einungis safnað í skýrum tilgangi.
  3. Að ekki sé safnað meiri persónuupplýsingum en nauðsynlegt er.
  4. Að persónuupplýsingar séu nákvæmar og uppfærðar þegar þörf krefur.
  5. Að persónuupplýsingar séu ekki geymdar lengur en þörf er á.
  6. Að gætt sé að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi varúðarráðstöfunum.

4. Um hverja safnar Grímur kokkur persónuupplýsingum?

Í starfsemi Gríms kokks er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, tengiliði viðskiptavina og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.

5. Hvaða persónuupplýsingum safnar Grímur kokkur um þig?

Grímur kokkur safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga. Undir öllum kringumstæðum leitast Grímur kokkur við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.

Grímur kokkur safnar nauðsynlegum upplýsingum um starfsfólk, til dæmis upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, viðveru, laun og fleira. Einnig þarf fyrirtækið að halda til haga nauðsynlegum tengiliðaupplýsingum, svo sem nafni og netfangi, um starfsmenn viðsemjenda og aðra þriðju aðila.

6. Af hverju safnar Grímur kokkur persónuupplýsingum um þig?

Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:

  • Geta efnt samningsskyldu.
  • Geta veitt viðskiptavinum umbeðna þjónustu.
  • Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.
  • Uppfylla lagaskyldu.

7. Á hvaða lagagrundvelli vinnur Grímur kokkur persónuupplýsingar um þig?

Grímur kokkur safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:

  • Samþykki þínu.
  • Til að uppfylla samningsskyldu.
  • Til að uppfylla lagaskyldu.
  • Til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.

8. Hve lengi geymir Grímur kokkur persónuupplýsingar um þig?

Grímur kokkur geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.

9. Frá hverjum safnar Grímur kokkur upplýsingum um þig?

Grímur kokkur safnar persónuupplýsingum frá þér beint. Ef safnað er persónuupplýsingum frá þriðja aðila mun Grímur kokkur eftir fremsta megni leitast við að upplýsa viðkomandi einstakling um það.

10. Hvenær miðlar Grímur kokkur þínum persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?

Grímur kokkur miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem ráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka. Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum Gríms kokks um meðferð persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.

Grímur kokkur miðlar einnig upplýsingum til þriðju aðila þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum eða þegar það er nauðsynlegt til að gæta lögmætra hagsmuna fyrirtækisins eða annarra.

11. Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Grími kokki er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

12. Réttindi þín

Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá nýtur þú einnig annarra réttinda, svo sem réttar til aðgangs að þínum gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum um þig verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þig og réttar til að flytja eigin gögn. Hafa skal í huga að réttindi þín eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.

13. Öryggi persónuupplýsinga

Grímur kokkur hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar fyrirtækið að því að starfsmenn fái reglulega viðeigandi fræðslu og þjálfun um öryggismál.

14. Samskiptaupplýsingar Gríms kokks

Nafn: Grímur kokkur ehf.
Heimilisfang: Hlíðarvegi 5, 900 Vestmannaeyjar. Netfang: grimurkokkur@grimurkokkur.is.

15. Réttur til að leggja fram kvörtun hjá persónuvernd

Dragir þú í efa að Grímur kokkur meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).

16. Endurskoðun á þessari persónuverndaryfirlýsingu

Persónuverndaryfirlýsing þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar eru gerðar á því hvernig Grímur kokkur vinnur með persónuupplýsingar. Eftir að breytingar hafa verið gerðar á persónuverndaryfirlýsingunni taka þær gildi þegar uppfærð útgáfa hefur verið birt á heimasíðu Gríms kokks (www.grimurkokkur.is).